Stigamót á Billiardbarnum

Fjórða stigamót vetrarins í opnum flokki fer fram um helgina, 28-29.01. á Billiardbarnum Faxafeni 12. Að venju hefst mótið klukkan 11:00 og eru menn hvattir til þess að vera tímanlega á ferð.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

40+

Tryggvi Erlingsson, til hægri á myndinni hér að ofan, stóð uppi sem sigurvegari í stigamóti helgarinnar eftir að hafa lagt Brynjar Kristjánsson 4-1 í úrslitaleik. Tryggvi var vel að sigrinum kominn, vann alla sína leiki og tapaði aðeins þremur römmum. Einum í úrslitaleiknum og tveimur gegn reynsluboltanum Bjarna Jónssyni í 8 manna. Hæsta skor Tryggva var 39. Jón „rakari“ Guðmundsson kom öllum á óvart í mótinu. Eftir frekar slaka frammistöðu í riðlinum, tók hann sig til og sló sjálfan Sumarliða Gústafsson út í 12 manna og svo Rúrik Vatnarsson í 8 manna og þar með kominn í undanúrslit. Þar laut hann hins vegar í lægri hlut gegn Brynjari Kristjánssyni en tók þó af honum einn ramma. Stigalisti hefur verið uppfærður hér á síðunni og sjá má riðlana í dálknum „mót“ hér að ofan.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

Stigamót 40+

Fjórða stigamót vetrarins í flokki 40+ fer fram nú um helgina, 14-15 janúar, á Snóker og Pool stofunni Lágnmúla 5. Mótið hefst klukkan 11:00 að venju og eru þátttakendur hvattir til þess að vera tímanlega á ferð. Mótið er opið hverjum þeim sem orðinn er fertugur og gerist meðlimur í Billiardsambandi Íslands.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

Dagsetningar stigamóta

Í dagatalið hér til hliðar hafa dagsetningar fyrir seinni hluta stigamóta yfirstandandi tímabils verið settar inn. Setjið bendilinn yfir rauða daga og kemur þá fram hvaða mót stendur til og hvar skal haldið. Það er rétt að menn fari að setja sig í stellingar þar sem stutt er í næsta mót.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

Bikarmót 50+

Pálmi Einarsson og Gylfi Ingason léku til úrslita í Bikarmóti 50+ rétt eins og í fyrra. Aftur hafði Gylfi betur og vann 3-1. Í þriðja sæti mótsins varð Íslandsmeistari 50+, Sigurmundur Guðmundsson.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

Bikarmót öðlinga

Bergur Björnsson og Lúðvík Norgulen lékur úrslitaleik í bikarmóti 67 ára og eldri sem fram fór á Billiardbarnum síðastliðinn sunnudag. Samanlögð leikreynsla þeirra er meira en mannsaldur og er mikil yfirvegun í þeirra leikaðferð. Lúðvík hafði betur í leiknum sem endaði 4-0.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

Þriðja stigamót 40+

Sumarliði Gústafsson vann Tryggva Erlingsson 4-0 í úrslitaleik stigamóts helgarinnar. Sumarliði tapaði ekki ramma í mótinu og í undanúrslitum vann hann Þorstein Hallgrímsson 3-0 sem má teljast nokkuð gott þar sem Þorsteinn er vel liðtækur í snóker. Hæsta skor Sumarliða í mótinu var 64, og gerði hann það í einni fallegustu hreinsun sem sést hefur lengi, enda hlaut hann gott klapp viðstaddra fyrir. Riðlar mótsins hafa verið settir inn í dálknum „mót“ hér að ofan og stigalisti jafnframt uppfærður. Þá er að finna myndir í myndaalbúmi.

Eins og sést í dagatalinu hér til hægri þá standa til bikarmót þann 10 desember fyrir 21 árs og yngri, 50 ára og eldri og í fyrsta sinn fyrir 70 ára og eldri. Þessi mót eru opin hverjum þeim sem vilja mæta og uppfylla aldursskilyrði.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

Kristján Helgason sigrar

Snókerundrið, Kristján Helgason sigraði Bernharð Bernharðsson í úrslitum stigamóts helgarinnar í opnum flokki 5-1. Að venju bar Kristján þó nokkra yfirburði yfir aðra í mótinu, fór létt í gegnum alla þar til kom að Jóa B í undanúrslitum, en vann 4-2 og gerði meðal annars 102 í þeim leik. Allur var hann þó ekki þar með og gerði 107 og 134 í úrslitaleiknum gegn Bernharð. Bernharð átti 112 í rammanum sem hann vann. Þá skal þess getið  að Bernharð ætlar sér að vera fulltrúi okkar á heimsmeistaramóti áhugamanna sem fram fer í Bangalore á Indlandi nú í lok mánaðarins. Að loknum þremur mótum eru þeir Þorri Jensson og Bernharð Bernharðsson jafnir í efstu sætum með 620 stig. Stigalistinn hefur verið uppfærður og er hann að finna í dálknum, stigalistar, hér að ofan. Rauðmerktir dagar í dagatalinu hér til hægri eru mótsdagar og með því að setja bendilinn á dagana má sjá hvaða mót stendur til og hvar skal haldið.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

Stigamót í opnum flokki

Þriðja stigamót vetrarins í opnum flokki fer fram nú um helgina, 12-13 nov, á Snóker og pool stofunni Lágmúla 5. Þorri Jensson og Bernharð Bernharðsson eru á toppnum á stigalista en bil milli manna er ekki svo mikið enn sem komið er svo menn þurfa að hafa fyrir því að halda sínum sætum. Mótið hefst kl 11:00 og eru menn hvattir til þess að mæta tímanlega.

Í síðasta stigamóti 40+ léku til úrslita Brynjar Valdimarsson og Gunnar Hreiðarsson. Brynjar hafði betur í leiknum og halaði þar með inn 300 stig. Brynjar var að spila feikna vel á köflum og gerði 84 og 86 í riðlakeppninni. 2 vikur eru í næsta mót í 40+.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð

Stigamót 40+

Annað stigamót í flokki 40 ára og eldri fer fram nú um helgina 29.10.-30.10. Mótið fer fram á Snóker og Pool stofunni Lágmúla 5 og hefst kl. 11:00. Mótið er opið hverjum þeim sem er orðinn fertugur og gerist félagi í Billiardsambandi Íslands.

Sett inní Uncategorized | Skilja eftir skilaboð